Bog & idéBøgerLydbøgerBillige lydbøger

Sigur

Sigur

Vælg format:

E-bog

9,95 DKK
Minimumsbestilling: 1

Forlagsbeskrivelse af Sigur af Guðrún Lárusdóttir

Guðrún Lárusdóttir (1880 - 1938) hefur lengi verið þekkt fyrir fallegar sögur sem miðla þungum og erfiðum en jafnframt fallegum boðskap. Þar er Sigur (1917) enginn eftirbátur. Sagan fjallar um móðursorg. Sigrún hefur nýlega misst dóttur sína, Lilju. Hún leitar huggunar hjá vinnukonu sinni, Unu, sem þekkir sorgina sjálf af sárri reynslu. Á meðan Sigrún gengur í gegnum erfiða sorg á ýmislegt sér stað í nærumhverfi hennar. Fólkið í sveitinni sýnir henni ekki alltaf nærgætni og samfélagið gerir fljótt kröfur til hennar aftur um að gefa af sér og leggja öðrum lið. En Una reynir af fremsta megni að skerast í leikinn og hlífa nánustu vinkonu sinni við erfiðleikum, áreiti og dómhörku annarra. Þegar Sigrún telur sig ekki rata heim í myrkri tendrar Una ljós í glugga bæjarins. Sagan er innsýn inn í reynslu og tilfinningalíf kvenna snemma á 20. öldinni, hún varpar ljósi á mennskuna sem hefur lifað með okkur í gegnum aldirnar og gerir hetjudáðum kvenna hátt undir höfði. Guðrún Lárusdóttir fæddist árið 1880 í Fljótsdal og lést í bílslysi árið 1938. Hún var einn afkastamesti kvenrithöfundur landsins um skeið og þótti andlát hennar mikill missir fyrir íslenska menningu. Fólk beið eftirvæntingarfullt eftir verkum hennar sem voru mikið lesin. Guðrún var önnur konan til að sitja á Alþingi, á ferli sínum lagði hún mikla áherslu á velferðarmál með því að beita sér fyrir styrkjum til kvennasamtaka. Einnig starfaði Guðrún sem fátækrafulltrúi Reykjavíkur um skeið. Frammistaða hennar í stjórnmálum var einstök, þegar hún sat á lista gaf hún út sína eigin stefnuskrá til að leggja áherslu á þau gildi og þær hugsjónir sem hún hafði umfram stefnu flokksins. Hún átti viðburðaríka ævi og lagði sig fram við að gefa til samfélagsins. Hún starfaði sem rithöfundur og skrifaði sextán verk yfir ævina, einnig þýddi hún verk úr dönsku, þýsku og ensku. Verk hennar bera þess merki að vera eftir konu með samfélagslegt innsæi.

Detaljer

Serie
Forlag
SAGA Egmont
ISBN
9788728569313
Sprog
ice
Originaltitel
Sigur
Udgivelsesdato
03-04-2023
Format
E-bog
E-bog format
REFLOWABLE
Filtype
Epub
DRM beskyttelse
DigitalVandmaerkning
Datamængde
240 KB
Varenr.
3095812
EAN nr.
9788728569313
Varegruppe
Lydbøger

Bogens kategorier

Klik på en kategori for at se lignende bøger

Anmeldelser af Sigur

Brugernes anmeldelser
Vurderet 0 ud af 5 baseret på 0 vurderinger
Mediernes anmeldelser
Vurderet 0 ud af 5 baseret på 0 vurderinger
Se detaljer her