Hljóðheimur þegar þú þarft ró fyrir svefninn
0.0
( 0 )
Islandsk
En del af Saga Sounds
Slakaðu á með náttúruhljóðum.Við róum mjúklega niður lækinn á kanó sem er umkringdur fallegasta græna landslaginu. Fuglar kvaka í trjánum, skordýr suða og vatnið skvettist mjúklega þegar þú róar. Því ...Forlagsbeskrivelse af Hljóðheimur þegar þú þarft ró fyrir svefninn af Rasmus Broe
Slakaðu á með náttúruhljóðum.Við róum mjúklega niður lækinn á kanó sem er umkringdur fallegasta græna landslaginu. Fuglar kvaka í trjánum, skordýr suða og vatnið skvettist mjúklega þegar þú róar. Því næst köfum við í sjóinn og njótum þess að reka um á rólegum hraða undir vatninu. Fjörugir höfrungar gefa frá sér smellhljóð þegar þeir synda framhjá og gríman þín myndar örsmáar málmhljómandi loftbólur sem rísa upp að yfirborðinu. Við komum upp úr í skóginum þar sem sólin skín á milli trjátoppanna sem hreyfast lítillega í golunni. Þú nýtur þín í kyrrðinni og hlustar á notalega hljóma náttúrunnar. Rigningin byrjar að falla og þú ert umkringdur þykkri og hlýri þoku, háum trjám og dúnmjúkum skógarbotni. Við endum heima þar sem vindurinn blæs fyrir utan gluggann og það hvín í trjánum. Rigninging slær taktfast á þakið og í fjarska heyrast drunur í þrumum. Innandyra er hlýtt og notalegt og lætin í veðrinu hafa róandi áhrif á þig. Hér getur þú slakað fullkomlega á og sofnað værum svefni.Saga SoundsRannsóknir hafa sýnt að hljóð geta haft bæði slakandi og örvandi áhrif á heilann. Slökunar serían er röð af skemmtilegum og fjölbreyttum hljóðheimum sem þú getur hlustað á þegar þú vilt slaka á, fara að sofa eða einbeita þér vinnunni. Sérhannaður hljóðheimur skapar róandi andrúmsloft sem þú getur stigið inn í hvenær og hvar sem þú vilt.
Uddrag
Prøvelyt
Hljóðheimur þegar þú þarft ró fyrir svefninnDetaljer
Serie
Forlag
SAGA Egmont
ISBN
9788727318035
Sprog
Islandsk
Originaltitel
Hljóðheimur þegar þú þarft ró fyrir svefninn
Udgivelsesdato
19-12-2025
Format
Lydbog
Filtype
zip_mp3
DRM beskyttelse
DigitalVandmaerkning
Datamængde
497432 KB
Varenr.
3433243
EAN nr.
9788727318035
Varegruppe
Lydbøger
