Milljónarseðillinn
Anmeldelser af (0)
Milljónarseðillinn
Anmeldelser af (0)
Vælg format:
Minimumsbestilling: 1
Forlagsbeskrivelse af Milljónarseðillinn af Mark Twain
Sagan segir af hinum unga Henry Adams sem lendir í afdrifaríkum óförum í bátsferð að kvöldlagi. Blessunarlega er honum bjargað af ensku briggskipi og tekur þá við löng og ströng sigling. Þegar skipið kemur loks að landi í Lundúnarborg er Henry bæði auralaus og ráðþrota. Gerist þá hið óvænta og daginn eftir er hann kallaður á fund auðugra bræðra sem vilja lána honum peningaseðil að virði milljón dollara. Með seðilinn í vasanum tekur líf Henrys stakkaskiptum og nú reynir verulega á skynsemi hans og heiðarleika.
Samuel Langhorne Clemens (1835-1910), betur þekktur sem Mark Twain, var bandarískur rithöfundur. Framan af starfaði Twain við prentiðn en hóf síðar störf sem blaðamaður. Þar fann hann ástríðu sína og vakti fljótt athygli fyrir einstaka ritfærni og kímnigáfu. Ásamt því að skrifa fjölmargar skáldsögur, smásögur og blaðagreinar skapaði Twain sér einnig gott orðspor sem ferðabókahöfundur og fyrirlesari. Þekktustu skáldverk hans eru Sagan af Tuma litla og Stikilsberja-Finnur. Twain er talinn með áhrifamestu rithöfundum amerískra bókmennta.
Detaljer
Forlag
SAGA Egmont
ISBN
9788728449141
Sprog
ice
Originaltitel
Milljónarseðillinn
Udgivelsesdato
04-01-2023
Format
E-bog
E-bog format
REFLOWABLE
Filtype
Epub
DRM beskyttelse
DigitalVandmaerkning
Datamængde
318 KB
Varenr.
3077135
EAN nr.
9788728449141
Varegruppe
Lydbøger